Lægri aldursmörkum fyrir U18 breytt

Stjórn ÍHÍ ákvað í gær að breyta lægri aldursmörkum fyrir þá sem leika á Íslandsmóti U18 pilta.

Fyrir tímabilið voru þessar reglur færðar til samræmis við reglur IIHF. Í gær, áður en leikur númer 1 í keppni U18 fór fram, komu ábendingar frá aðildarfélögum um að þessi framsetning væri ekki heppileg, enda eru keppnir IIHF á hverju ári innan almanaksárs en við erum að vinna með keppnistímabil sem liggur frá hausti til vors innan tveggja almanaksára. Bein túlkun á reglum IIHF þýðir að leikmenn fæddir 2012 myndu ekki fá að leika með U18 fyrr en um áramót. Það er á margan hátt óeðlilegt og passar illa inn í okkar ferla og afreksmarkmið að takmarka leikheimildir við hálft tímabil.

Stjórn sambandsins ræddi þetta og komst að þeirri niðurstöðu að neðri aldursmörk fyrir U18 skyldu liggja hjá þeim sem verða fimmtán ára á almanaksárinu sem vorönn keppnistímabilsins nær yfir. Það þýðir að leikmenn fæddir 2012 eru yngstir þeirra sem hafa leikheimild með U18 á þessu tímabili. Þeir leikmenn í dag sem hafa aldur til að leika með U18 í keppni IIHF fyrir árið 2027 fá því heimild til þess að leika allt tímabilið.
Rétt er hér að taka fram að þessi heimild á bara við um Íslandsmót U18 pilta.
Eftir sem áður þurfa leikmenn að verða 15 ára á almanaksárinu til þess að fá leikheimild með meistaraflokki karla og 13 ára á almanaksárinu með meistaraflokki kvenna, það er eins og áður.

Líkt og áður er skilyrt að leikmaður, foreldri og þjálfari þeirra sem eru yngri en 16 ára og leika með U18 liði, undirriti yfirlýsingablað fyrir leikmenn undir aldri sem má finna með því að smella hér á takkann hér að neðan.

Yfirlýsing fyrir U18