Kynning á íshokkí fyrir stelpur - Global Girls Game

Skautafélag Reykjavíkur tekur þátt í Girls Global Game en það er íshokkíleikur kvenna spilaður um allan heim sömu helgi - hvítir á móti bláum. 

Skautafélag Reykjavíkur  hvetur stelpur á öllum aldri til að koma og taka þátt í þessum frábæra viðburði.

Tími, sunnudagurinn 17. febrúar kl 11:45 í Skautahöllinni í Laugardal. Mætum tímalega.

Að sjálfsögðu eru byrjendur hjartanlega velkomnir - Íshokkískóli SR er með æfingu á sama tíma.

Leikmenn úr íslenska kvennalandsliðinu og meistaraflokki kvenna verða á staðnum - ekki missa af þessu frábæra tækifæri!

#globalgirlsgame2019 #globalgirlsgame #iihf #womenshockey

SR-Global Girls Game.