Kylfusláttur

Það er ekki margt sem golf og íshokkí eiga sameiginlegt. Í báðum íþróttunum eru þó notaðar kylfur og svosem ekki ólíklegt að þeir sem spila hokkí geti snúið sér að golfi og náð þar ágætis árangri. Fyrrum þjálfari SR-inga Ed Maggicomo þótti ansi liðtækur golfspilari og nú hefur núverandi þjálfari þeirra og landsliðsþjálfari Richard Tahtinen bæst í hópinn. Richard tekur þessa dagana þátt í móti sem fram fer í golfhermi í Veggsporti og þarf ekki að kvarta yfir árangrinum eftir fyrstu umferð. Nánari frétt um mótið má sjá hér.

Myndina tók Ómar Þór Edvardsson

HH