Kvennanefnd

Eins og kom fram í frétt af formannafundi hér fyrr í mánuðinum var borin fram og samþykkt reglugerð um kvennanefnd ÍHÍ. Nefndinni er ætlað að vinna að framþróun íshokkís kvenna og reyna að hraða þróuninni sem hefur verið. Ef einhver hefur áhuga á málefninu og áhuga á að taka þátt í starfi nefndarinnar er honum velkomið að hafa samband með því að senda póst á ihi@ihi.is.

HH