Kvennalandsliðið


Liðið stillti sér upp í æfingabúðum rétt fyrir keppni.                                                   Mynd: Elvar Freyr Pálsson

Kvennalandslið Íslands í íshokkí lent í gær að íslenskum tíma í Seúl en næstu nótt hefja þær keppni í II. deild b-riðils á HM. Einsog alltaf halda fararstjórar út dagbók á vef liðsins og hana má finna hér. Einnig er kominn hægra meginn á síðuna hjá okkur tengill inn á síðu Alþjóða Íshokkísambandsins þar sem finna má leiki,  tölfræði og fleira. Fyrsti leikur íslenska liðsins er komandi nótt og hefst hann klukkan 04.00 að íslenskum tíma.

Áhugasömu hokkífólki sem á snjallsíma er bent á að nálgast má forrit í símana til að fylgjast með úrslitum einstakra leikja, Nóg á að vera að skrifa IIHF í leit og þá kemur forritið upp.

HH