Stelpurnar komnar á leiðarenda

Kvennalandsliðið er komið á áfangastað í Rúmeníu eftir ferðalag síðan snemma í morgun.  Þær voru komnar inn á hótel um kl. 21:00 í kvöld en þá er kl. 23:00 að staðartíma.  Þær flugu í gegnum Frankfurt og aldrei þessu vant týndist engar töskur og segja má að ferðalagið hafi gengið eins og í sögu.