Handbók.

Þá er hin geysivinsæla handbók komin út og um að gera að fara vel yfir hana. Eitt af því sem eftir er að gera er að útvega ljósrit/skönnun af vegabréfum leikmanna. Best er ef þið getið komist í skanna, skannað opnuna á vegabréfinu, þar sem myndin er, og sent mér það á ihi@ihi.is. Ég prenta það svo út og geri klárt fyrir fararstjóra. Hin leiðin er að ljósrita þessa opnu og mæta með hana og láta Margréti hafa hana í upphafi ferðalags. Ef hvortugt þetta gengur þá hafið samband við mig á ihi@ihi.is og við finnum einhverja lausn á þessu. Svo lesum við bara 24 stundir á morgun og vonum að allt sé jákvætt.

HH