Úrslit leikja 2 og 3

Það er að koma í ljós mikill getumunur á liðunum í fjórðu deild þetta árið. Leikur 2 fór þannig að Króatía vann Eistland 12-0 og var athyglisvert að leikmaður númer 5 skoraði 10 mörk þar af 9 án stoðsendinga.  Í leik 3 sem var að ljúka núna laust fyrir kl.23 voru það Rúmenar sem rúlluðu yfir Tyrkneska liðið og voru úrslit 27-0, ekki skemmtilegur leikur að horfa á. Leikir morgundagsins eru:

Nýja Sjáland- Króatía
Tyrkland - Eistland
Rúmenía - Ísland

Af töskumálum er ekkert að frétta, enn vantar tvær liðsmanna töskurnar sínar og enn ekki að marka þau svör sem fengist hafa hingað til um skil á þeim. Áfram verður unnið í málinu en ljóst er að sumir hér eru að verða þreyttir á þrýstingnum frá íslensku fararstjórninni. Frekar er kalt hér en stúlkurnar eru kátar og njóta sín vel saman.
Kveðjur frá okkur öllum hér í Miercurea Ciuc.