Staðan fyrir fyrsta leik

Liðið átti ágæta æfingu kl.8 í morgun og er stemming góð fyrir fyrsta leikinn á eftir við Nýsjálendingana. Taskan hennar Rósu kom ekki í gærkvöld eins og var búið að segja okkur en er víst á leiðinni núna og nær vonandi í tæka tíð fyrir leikinn.  Ekkert hefur verið staðfest um hinar tvær töskurnar (Vigdísar og Maríu) enn en við erum að þrýsta á alla aðila til að fá upplýsingar um þær.  Við urðum fyrir miklum vonbrigðum þegar Eistarnir mættu á svæðið og í ljós kom að þau eru í nákvæmlega eins peysum og við, sömu tegund og sama lit jafnvel merktar á sömu stöðum, alveg ótrúlegt.
Meira seinna í dag.
Fararstjórar