Æfingarbúðirnar á Akureyri

Kvennaliðið var við æfingar á Akureyri um sl. helgi og gekk vel að slípa samleikinn.  Sarah Smiley þjálfari og Hulda Sigurðardóttir aðstoðarþjálfari tilkynntu í lok helgarinnar nöfn þeirra leikmanna sem koma til með að leiða liðið í komandi keppni í Rúmeniu.  Fyrirliði liðsins er Hanna Rut Heimisdóttir og nýtur hún aðstoðar þeirra Flosrúnar Vöku Jóhannesdóttur og Jónínu Margrétar Guðbjartsdóttur.
Hér er mynd af liðinu kláru í slaginn í Skautahöllinni á Akureyri.

Fremri röð: Anna Sonja, Steinunn Erla, Karitas, Sarah þjálfari, Hulda aðst.þjálfari, María, Vigdís og Ingibjörg
Aftari röð: Rósa, Hrund, Flosrún, Hanna Rut, Sigríður, Jónína Margrét, Sigrún, Jóhanna Sigurbjörg og Lilja.
á myndina vantar: Guðrúnu Blöndal, Sólveigu, Patriciu, Bergþóru, Hrafnhildi.