Kvennaflokkur; SA 4 Björninn 3

Rétt í þessu var leik SA og Bjarnarins að ljúka í kvennaflokki.  Leikurinn var mjög jafn og spennandi frá upphafi til enda og mikil barátta hjá báðum liðum.  Björninn reið á vaðið og skoraði fyrsta mark leiksins strax í fyrstu lotu og varð það eina mark lotunnar.  Björninn jók svo forskot sitt snemma í 2. lotu í 2 - 0 en þá kom SA með tvö mörk í röð og eftir lotuna var staðan orðin jöfn 2 - 2.
 
SA hélt áfram að skora í 3. lotu og komst í 4 - 2 áður en Björninn svaraði fyrir sig og breytti stöðunni í 4 - 3.  Björninn gerði harða atlögu að marki SA á síðustu mínútunum á meðan SA lenti í miklum brottrekstrarvandræðum en á meðan mest var voru 4 leikmenn SA í refsiboxinu í einu.  Þeim tókst engu að síður að verjast til leiksloka og tryggja sér sigurinn.  Lokastaðan 4 - 3 og loturnar fóru 0-1, 2-1 og 2-1.