Ísland - Tyrkland

Þá er komið að leik íslendinga og Tyrkja. Leikurinn fer fram klukkan 19.00 að staðartíma, þ.e. klukkan 17.00 að okkar tíma. Bæði liðin eru taplaus og í frétt á heimasíðu Alþjóða íshokkísambandsins (IIHF) kemur fram að þetta séu liðin sem komi til með að berjast um gullið. Eins og við sögðum frá hér á síðunni í gær er hægt að horfa á leikinn á netinu en hann verður sýndur á TRT 3 hjá Tyrkneska sjónvarpinu. Björn Geir læknir er að sjálfsögðu með sinn vinsæla pistil á U18 tenglinum og nú hefur hann bætt um betur með myndasíðu á Google. Á þeim má m.a. sjá nýjustu tísku í hársnyrtingu og svangan fararstjóra.

Mynd Björn Geir Leifsson

HH