Ísland tapaði fyrir Belgíu, 5 - 1

Íslenska U20 ára landsliðið stendur nú í ströngu á HM í Ítalíu.  Liðið var rétt í þessu að lúta í lægra haldi fyrir Belgíu með 5 mörkum gegn 1.  Eina mark Íslands skoraði varnarmaðurinn Sigurður Árnason.  Pétur Maack var svo í leikslok valinn besti leikmaður íslenska liðsins.
 
Hallmundur, framkvæmdastjóri ÍHÍ, er fararstjóri í þessari ferð og hann mun að öllum líkindum setja frekari upplýsingar um leikinn hér á síðuna síðar í dag.