Ísland - Kanada, æfingaleikur í Egilshöll

Kanada og Ísland
Kanada og Ísland

Kanadíski flugherinn sér um loftrýmisgæslu hér á landi þessa dagana og innan þeirra raða er íshokkílið.  Alls verða hér um 180 liðsmenn sem taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO og Landhelgisgæslu Íslands. Flugsveitin er hér á landi með nokkrar orrustuþotur og ein þeirra tók þátt í flugsýningu hér í Reykjavík um daginn, og vakti talsverða athygli.

Kanadíska liðið mætti í Egilshöll síðastliðinn þriðjudag og tók á móti úrvalsliði okkar manna og endaði leikurinn 16-7 fyrir Ísland.  Lið Kanadamanna skoruðu fyrstu tvö mörkin í leiknum og svo tóku okkar úrvalslið í taumana, jöfnuðu leikinn og bættu svo í jafnt og þétt. Stórskemmtileg stund fyrir bæði lið.

Næsta sunnudag, þann 11. júni munu liðin mætast aftur í Egilshöll.  Mæting er kl 18:00 og hefst leikur kl 19:00.

Allir eru velkomnir til að horfa á leikinn.  Það gæti farið svo að liðin myndu rugla saman reitum að þessu sinni, hluti íslendinga yrðu í liði með Kanada og öfugt.

Sjáumst hress, sunnudaginn 11. júni, leikur hefst kl 19:00.