Íshokkíþing

Eftirfarandi boðun var send til íþróttabandalaga:

Til sambandsaðila ÍHÍ
 
Málefni: 3. Íshokkíþing
 
 
3. þing Íshokkísamband Íslands (ÍHÍ) verður haldið laugardaginn 25. ágúst n.k. Þingið fer fram í húsi Norðurorku að Rangárvöllum á Akureyri og hefst klukkan 13.30.
Dagskrá verður samkvæmt 8. grein laga sambandsins.
Málefni sem sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þinginu skulu berast stjórn ÍHÍ minnst þremur vikum fyrir þing sbr. 6 gr laga sambandsins.

Ráðgert er að seinni boðun skv. lögum sambandsins verði send út í þessari viku.

HH