Íshokkísamband Íslands leitar að starfsmanni í 40% tímabundið starf

Íshokkísamband Íslands (ÍHÍ) óskar eftir öflugum og skipulögðum einstaklingi til starfa á skrifstofu sambandsins í 40% tímabundið starf, sem samsvarar að jafnaði tveimur vinnudögum á viku.Starfstímabilið er frá nóvember 2026 til mars 2027.Fram undan er viðburðaríkur vetur hjá Íshokkísambandinu. Í janúar 2027 stendur sambandið fyrir heimsmeistaramóti kvenna yngri en 18 ára á Akureyri á vegum Alþjóða íshokkísambandsins (IIHF). Starfsmaðurinn mun taka virkan þátt í undirbúningi, skipulagningu og framkvæmd mótsins ásamt því að sinna fjölbreyttum verkefnum á skrifstofu sambandsins.Helstu verkefni
  • Aðstoð við skipulagningu og undirbúning HM U18 kvenna á Akureyri.
  • Samskipti við þátttökuþjóðir, samstarfsaðila, sjálfboðaliða og aðra sem koma að framkvæmd mótsins.
  • Aðstoð við skipulagningu ferða, móttöku liða og annarra praktískra þátta tengdum mótshaldinu.
  • Umsjón og eftirfylgni með ýmsum verkefnum í aðdraganda mótsins.
  • Almenn skrifstofustörf fyrir Íshokkísamband Íslands.
  • Samskipti við aðildarfélög, iðkendur og aðra samstarfsaðila sambandsins.
  • Aðstoð við skráningar, upplýsingagjöf, skjalavinnslu og önnur verkefni sem falla til í daglegum rekstri sambandsins.
Menntun og reynslaVið leitum að einstaklingi sem er sjálfstæður, skipulagður og á auðvelt með að vinna með ólíku fólki. Æskilegt er að umsækjandi hafi:
  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði íþrótta, viðburðastjórnunar, verkefnastjórnunar, viðskipta eða stjórnsýslu. Sambærileg starfsreynsla getur vegið upp á móti formlegri menntun.
  • Reynsla af skrifstofustörfum, verkefnastjórnun eða skipulagningu viðburða er kostur.
  • Mjög góða íslensku- og enskukunnáttu, bæði í ræðu og riti.
  • Góða almenna tölvukunnáttu og færni til að tileinka sér ný kerfi.
  • Skipulagshæfni, nákvæmni og getu til að fylgja verkefnum eftir.
  • Frumkvæði og getu til að vinna sjálfstætt.
  • Góða samskiptafærni og jákvætt viðmót.
  • Sveigjanleika varðandi vinnutíma, sérstaklega í aðdraganda og á meðan heimsmeistaramótið stendur yfir.
  • Þekkingu á íshokkííþróttinni og íslensku íþróttahreyfingunni er kostur en ekki skilyrði.
Starfshlutfall og starfstímiUm er að ræða 40% tímabundið starf frá nóvember 2026 til mars 2027. Vinnutími er að jafnaði sem samsvarar tveimur vinnudögum á viku, en gera þarf ráð fyrir ákveðnum sveigjanleika.Starfið hentar vel einstaklingi sem hefur áhuga á íþróttum, verkefnastjórnun og viðburðahaldi og vill öðlast reynslu af starfi innan sérsambands og framkvæmd alþjóðlegs íþróttaviðburðar. Starfið getur líka hentað sem skólaverkefni á háskólastigi.UmsóknUmsókn skal innihalda ferilskrá ásamt stuttri greinargerð um umsækjanda, reynslu hans og ástæðu þess að hann hefur áhuga á starfinu.Nánari upplýsingar um starfið veitir Íshokkísamband Íslands.Umsóknarfrestur er til 15. októberUmsóknir skulu sendar á vidarg@ihi.is með fyrirsögninni „Umsókn – starfsmaður ÍHÍ“.