Íshokkímaður og íshokkíkona ársins 2005

ÍHÍ hefur útnefnt íshokkímann og konu ársins 2005.

Íshokkímaður ársins 2005
Jón Benedikt Gíslason er 22 ára gamall og spilar um þessar mundir með hinu alþjóðlega liði Nordic Vikings í Asíudeildinni.  Þar sem leikið er til skiptis í Japan, Kóreu og Kína. Jón lék lykilhlutverk í landsliði Íslands sem þátt tók í heimsmeistarakeppni Alþjóða íshokkísambandsins 2. deild í Belgrad síðasta vor.  Jón spilaði í Arhus í Danmörku á síðasta tímabili og lék jafnframt með Íslandsmeisturum Skautafélags Akureyrar í úrslitakeppninni í apríl.  Jón er mikill íþróttamaður og góð fyrirmynd yngri leikmanna.  Hann er án ef einn besti íshokkíleikmaður sem við eigum í dag og fyrsti íslenski atvinnumaðurinn í íþróttinni.


Íshokkikona ársins 2005
Birna Baldursdóttir er 25 ára gömul og spilar með Skautafélagi Akureyrar.  Birna er ein af máttárstólpum og fyrirliði hins sigursæla SA liðs sem unnið hefur Íslandsmeistaratitilinn síðustu 5 árin.  Hún var einnig í fyrsta kvennalandsliði Íslands sem keppti á Heimsmeistaramóti Alþjóða íshokkísambandsins í Nýja Sjálandi síðasta vor.  Birna er framúrskarandi íþróttamaður, drífandi og duglegur leikmaður, góð fyrirmynd og verðugur fulltrúi íþróttarinnar.

Báðir þessir leikmenn munu hljóta sérstaka viðurkenningu í hófi milli jóla og nýárs sem haldið er af ÍSÍ. Stjórn ÍHÍ og hokkífólk allt vill óska þessum frábæru íþróttamönnum til hamingju.