Íshokkímaður ársins 2022 - Jóhann Már Leifsson

Jóhann Már Leifsson hefur verið valinn íshokkímaður ársins 2022 af stjórn Íshokkísambandi Íslands.

Jóhann Már hefur leikið með Skautafélagi Akureyrar (SA) allan sinn feril fyrir utan eitt tímabil í Bandaríkjunum (Niagra Fury, 2011-2012) og eitt tímabil  í Svíþjóð (Motala, 2015-2016) og hefur verið lykilmaður í liði SA frá 14 ára aldri.  Jóhann Már hefur unnið fjölda Íslands- bikar- og deildarmeistaratitla. Jóhann Már hefur sýnt yfirburði á síðasta og núverandi tímabili í Hertz-deild karla (14 mörk, 29 stig, 21-22) og var valinn besti sóknarmaðurinn á heimsmeistaramóti IIHF í apríl síðastliðnum.

Jóhann Már hefur leikið með landsliðum Íslands frá unglingsaldri og hefur átt fast sæti undanfarin ár í A landsliði karla. Jóhann Már er lykilmaður  í landsliðinu, hefur átt mikinn þátt í árangri liðsins undan farin misseri og er til fyrirmyndar í alla staði.

Íshokkísamband Íslands óskar Jóhanni Má innilega til hamingju með árangurinn.