Íshokkífólk á iði um helgina í minningu fallinna félaga

Á morgun, laugardag, fer fram Reykjavíkurmaraþon. Skautafólk lætur ekki sitt eftir liggja og ætla margir að hlaupa til þess að minnast fallinna félaga. Fjölmargir SR-ingar hlaupa í minningu Patreks Sveinssonar sem lést í hræðilegu bílslysi í febrúar síðastliðnum.

Nokkrir Akureyringar eru á suðurleið og hlaupa í minningu Sólveigar Huldu sem lést einnig á árinu ásamt nöfnu sinni og barnabarni sem hún náði aldrei að sjá.

Skautafélag Akureyrar hefur ákveðið að færa þeim tækifæri sem ekki eiga heimangengt til að minnast Sólveigar Huldu í Reykjavíkurmaraþoni, með því að koma saman við skautahöllina og ganga, skokka eða hlaupa: upp Naustaveginn, að sjúkrahúsinu, niður Spítalaveginn og suður Aðalstrætið aftur að höllinni. Þetta eru u.þ.b. 4 kílómetrar.

Við hvetjum allt íshokkífólk áfram með góðum kveðjum og erum stolt af því hvað þessi hreyfing okkar hefur stórt og fallegt hjarta.