iceTimes

Hvar er tékkneski markvörðurinn Marek Schwarz að spila hokkí núna? Svarið við þessari spurningu og mörgum fleirum má finna í síðustu útgáfu af iceTime. Marek Schwarz var einn ungum og efnilegum leikmönnum sem átti frábæra keppni í U20 árið 2005. Skæðasti sóknarmaðurinn í þeirri keppni var Alexander Ovechkin. Fleir leikmenn sem tóku þátt í þessu móti hafa látið mikið að sér kveða í NHL þó að fyrrnefndur Marek sé ekki einn af þeim

Að sjálfsögðu er einnig fjallað mikið um Ólympíuleikana sem hefjast von bráðar í Vancouver í Kanada. Spennan fyrir hokkíkeppninn bæði í karla- og kvennaflokki er mikil en þess má geta að RÚV mun sýna sjö leiki beint frá leikunum.

Eitt og annað fleira er í blaðinu að þessu sinni en sjón eru sögu ríkari.

HH