Miðvikudaginn 11. nóvember kl. 14.00 að íslenskum tíma fer fram annað vefnámskeið Alþjóðaíshokkísambandsins (IIHF) í námskeiðaröðinni Skills4All. Þar verður fjallað um hvernig við getum auðveldað börnum að taka fyrstu skrefin í íshokkí og skapað aðstæður sem hvetja þau til að halda áfram.
Íshokkísamband Íslands hvetur þjálfara, starfsfólk og sjálfboðaliða félaganna og alla sem koma að barna- og unglingastarfi til að taka þátt. Þegar börn fá að prófa íshokkí í umhverfi sem þau þekkja geta fleiri fjölskyldur kynnst íþróttinni, líka þær sem hafa aldrei áður komið nálægt íshokkíi.
Peter Andrecs hjá ENZO og Florian Mühlstein hjá austurríska íshokkísambandinu kynna ENZO / PEER, verkefni þar sem íshokkífélög, leikskólar, skólar og svæðisbundin samtök vinna saman að því að kynna íþróttina fyrir ungum börnum. Börnin fá reglulega að fara á ís undir leiðsögn hæfra þjálfara. Þannig styður verkefnið við hreyfiþroska, félagsfærni og persónulegan þroska barnanna og getur lagt grunn að áframhaldandi þátttöku.
Í seinni hluta námskeiðsins kynnir Harald Springfeld, sviðsstjóri þróunar- og vaxtarsviðs IIHF, verkefni og stuðning sem landssambönd geta nýtt til að efla þróunarstarf sitt, fjölga iðkendum og byggja upp íþróttina til lengri tíma.
Við hér á Íslandi þekkjum auðvita að þetta er módelið á Akureyri, þar sem unnið hefur verið eftir þessari hugmyndafræði, en hér er örugglega eitthvað sem hægt er að tileinka sér.
Á Zoom geturðu fylgst með erindunum, spurt spurninga og tekið þátt í umræðum að þeim loknum. Fundarauðkenni er 881 0313 7834 og aðgangskóði S4A26. Taktu þátt á Zoom. Hlekkur: https://iihf.zoom.us/j/88103137834?pwd=cjv72mRu7DCHrccaKzGZOIvdm40CNP.1
Á YouTube geturðu fylgst með námskeiðinu í beinni. Umræðurnar að erindunum loknum fara fram á Zoom. Horfðu í beinni á YouTube: https://youtube.com/live/HhVuMeqvxYA?feature=share
Upptaka af erindunum verður aðgengileg á vef IIHF að námskeiðinu loknu. https://www.iihf.com/en/static/24308/webinars
Við hvetjum aðildarfélögin til að deila þessari frétt með öllum sem vinna að því að bjóða fleiri börn velkomin í íshokkí.