Hokkíhelgin

Úr myndasafni
Úr myndasafni

Alls eru átta leikir á dagskrá íslandsmóta þessa helgina en bæði verður leikið í Reykjavík og á Akureyri.

Fyrst ber að nefna leik Skautafélags Reykjavíkur og Ásynja sem leikinn verður í Dalnum á morgun og hefst leikurinn klukkan 18.30. Liðin hafa ekki mæst áður í vetur en gefa má sér að SR-konur, sem sitja í botnsæti deildarkeppninnar, eiga erfiðan leik fyrir höndum. Ásynjur eru á topnnum , hafa einungis tapað einu stigi, en það var í leik gegn Birninum. Arna Rúnarsdóttir markvörður SR hefur verið meidd um tíma en annars er ekki vitað um önnur meiðsli hjá liðunum.

Strax að leik kvennanna loknum leiða saman hesta sína lið SR og SA í 2. flokki karla.

Á Akureyri verður síðan haldið mót í fjórða flokki en dagskrá þess má sjá hérna hægra meginn á síðunni.

Mynd: Elvar Freyr Pálsson

HH