Hokkíhelgin

Frá leik liðanna nýlega.
Frá leik liðanna nýlega.

Framundan er fjölbreytt hokkíhelgi að þessu sinni en að þessu sinni fer hún öll fram hérna sunnan heiða.

Fyrsti leikur helgarinnar er í kvöld en þá mætast UMFK Esja og Skautafélag Reykjavíkur í Laugardalnum og hefst leikurinn klukkan 19.45. Síðasti leikur liðanna var jafn og spennandi en það voru SR-ingar sem skoruðu mörkin en leiknum lauk með 3 - 0 sigri þeirra. Robbie Sigurðson er fjarverandi úr SR-liðinu vegna meiðsla og hjá Esju er Matthías Skjöldur Sigurðsson kominn til baka en Egill Þormóðsson er í leikbanni.

Síðari leikurinn í meistaraflokk er leikur Bjarnarins og SA Víkinga, á morgun laugardag, en sá leikur fer fram í Egilshöll og hefst klukkan 18.10. Fyrir leikinn eru Víkingar efstir í deildarkeppninni með 27 stig, fimm stigum á undan Birninum sem kemur næstur. Leikurinn hefur, einsog gefur að skilja, all mikla þýðingu fyrir bæði lið. Ekki er vitað um neinar fjarvistir leikmanna í liði Bjarnarins en hjá Víkingum hafa tveir leikmenn útskrifast af sjúkralistanum. Annarsvegar Sigurður Reynisson og hinsvegar Orri Blöndal sem verið frá um nokkurn tíma. Rúnar F. Rúnarsson er hinsvegar í leikbanni.

Egilshöllinn verður síðan full af lífi alla helgina þegar fer fram mót í barnarflokkum. Spilað er frá morgni  til kvölds á laugardaginn og á sunnudaginn til hádegis. Dagskrá mótsins má sjá hér.

Tveir leikir fara síðan fram í þriðja flokki um helgina. Báðir í Laugardalnum en þar mætast Skautafélag Reykjavíkur  og Skautafélag Akureyrar. Fyrri leikurinn er á laugardeginum og hefst klukkan 18.30 en sá síðari á sunnudagsmorgni klukkan 10.00.

Mynd: Sigurgeir Haraldsson

HH