Hokkíhelgi

Á morgun koma í heimsókn að norðan meistaraflokkur og 3. flokkur SA og etja kappi við SR-inga í Laugardalnum. Meistaraflokksleikurinn er leikinn á undan og hefst hann klukkan 18.30.

SA-menn tryggðu sér á síðasta þriðjudag sæti í úrslitum Íslandsmótsins með öruggum sigri á Bjarnarmönnum en með sigri í leiknum á morgun tryggja þeir sér heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni.
SR-ingar geta hinsvegar með sigri á morgun tryggt sig inn í úrslit, hvernig svo sem úrslit síðasta leik deildarinnar yrðu.
Síðasti leikur liðanna fór fram á Akureyri fyrir u.þ.b. tveimur vikum og þá unnu SR-ingar nokkuð öruggan og sanngjarnan sigur en þeir gerður 8 mörk gegn 4 mörkum SA-manna. SA-menn eiga því harma að hefna en þetta er þeirra síðasti leikur fyrir úrslitakeppni.

Strax að meistararflokksleiknum loknum hefst leikur 3. flokksins.

Myndina tók Sigurgeir Haraldsson.

HH