Hokkíhelgi

Hokkíhelgin að þessu samanstendur af leik og æfingabúðum. 

Á morgun laugardag leika í Egilshöllinni klukkan 17.30 lið Húna og Víkinga. Nú þegar liggur fyrir hvaða lið spila úrslitakeppnina þannig að leikurinn, sem er sá síðasti í deildinni, breytir þar engu um. Húnar munu stilla upp sterku liði en eitthvað mun vera um meiðsli í hópi Víkinga. 

Um helgina fara einnig fram æfingabúðir kvennalandsliðsins og verða þær haldnar á Akureyri. Liðið mun halda næstkomandi miðvikudag til Seúl í Suður-Kóreu. Dagskrá búðanna má sjá hér.

HH