Hokkídagurinn mikli

Unnið er að fullum krafti við að undirbúa Hokkídaginn mikla sem fer fram nk. laugardag frá klukkan 13.00 til 16.00. Verkefnið er unnið í samstarfi útbreiðslunefndar ÍHÍ og aðildarfélaganna ásamt því að ÍBR og Skautahöllin á Akureyri leggja hönd á plóg. Dagurinn verður haldinn í öllum skautahöllum og þar býðst börnum á aldrinum 6 - 12 tækifæri á að prufa hokkí.
Dagurinn er góð byrjun á tímabilinu hjá okkur hokkímönnum og ástæða er til að hvetja alla félagsmenn í félögunum til að bjóða fram hjálparhönd inn í sitt félag. Kynningarsíða er komin upp fyrir verkefnið og ýmisleg önnur kynning í bígerð.

HH