HM Tyrkland - U18

Nú er íslenska drengjaliðið komið á hótel sitt í Tyrlandi og hefur ferðin gengið að mestu áfallalaust. Seinkun á flugi og týndar töskur eru ekki nýjar fréttir í þessum bransa ásamt öðrum þeim vandamálum sem kunna að verða á vegi svona stórs hóps þegar hann tekur sig til og ferðast. Á heimasíðu Alþjóða Íshokkísambandsins er safnað saman upplýsingum um hvern leik og fyrir þá sem hafa áhuga á þá má finna allt um liðskipan og úrslit leikja hér.

HH