HM 2008

Eins og allir íshokkíáhugamenn vita þá fer HM í efstu deild karla fram í Kanada 2 - 18 maí á næsta ári. Riðlarnir verða spilaðir í Quebec og Halifax. Kanadamennirnir eru að sjálfsögðu byrjaðir að koma mótinu á framfæri og hér má finna allar upplýsingar um það s.s. hótel og miða á leikina. Enginn þarf að efast um annað en að heimamenn muni halda þetta með glæsibrag enda 100 ára afmæli íshokkís á næsta ári. Þeir sem vilja fara í öðruvísi sumarfrí þetta árið, hafa því kjörið tækifæri á því.

HH