Helgin framundan

Um helgina fer fram Hringrásarmótið í Skautahöllinni á Akureyri. Þar munu börnin í 5; 6. og 7. flokk leiða saman hesta sína. Mjög gaman er að kíkja á krakkana enda skín eftirvænting úr öllum andlitum og menn leggja sig alla fram. Dagskrá mótsins hefur verið birt en þó eru settir fyrirvarar um breytingar ef eitthvað kemur uppá. Tæplega 140 krakkar eru skráðir til leiks og er það mesti fjöldi sem komið hefur af þessum aldursflokki til mótahalds á Akureyri. 

Myndina tók Ómar Þór Edvardsson

HH