Heldri manna mót

Um aðra helgi verður haldið heldri manna mót í Skautahöllinni á Akureyri. Mót þessi eru oft hin mesta skemmtun þótt stundum sé kappið öllu meira en forsjáin.

Mótið er kennt við Magnús Einar Finnsson sem var einn af burðarásum í íslensku íshokkí um árabil.  Magnús gegndi hin síðustu ár starfi formanns Skautafélags Akureyrar en auk þess að hafa bæði verið leikmaður og þjálfari hjá félaginu dró hann vagninn í norðlensku íshokkí í áraraðir.  Magnús gegndi ýmsum trúnaðarstörfum innan íshokkíhreyfingarinnar og átti sæti í stjórn Skautasambandsins og  síðar í stjórn Íshokkísambandsins til dauðadags, en hann lést árið 2005.

Dagskrá mótsins má sjá á heimasíðu Skautafélags Akureyrar

Myndina tók Sigurgeir Haraldsson

HH