Hádegisfundur ÍSÍ

Við viljum benda á að hádegisfundir ÍSÍ eru hafnir. Á morgun föstudag er fundur í í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal og stendur hann milli kl. 12.00-13.00.  Hinn virti íþróttaþjálfari frá Bandaríkjunum David Jack mun fjalla um íþróttaþjálfara og hlutverk þeirra.  Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir auk þess sem hann verður sendur beint út á netinu.  Þeir sem vilja nýta sér netútsendinguna er bent á að hafa samband við Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 eða 863-1399.

Myndina tók Jakob Fannar Sigurðsson

HH