Gull leikur í dag

Undir 20 ára landslið okkar leikur sinn loka leik á heimsmeistaramótinu í Litháen klukkan 16:30 að íslenskum tíma við heimamenn Litháa.  Þessi leikur er hreinn úrslitaleikur um gull á mótinu. Okkar mönnum nægir reyndar jafntefli þar sem að við höfum eitt mark á Litháana í markahlutfalli.

Ljóst er að Litháen er með sterkt lið á mótinu, þannig að þetta verður mikil rimma. Uppselt var í Höllina í Elektrenai fyrir 2 dögum þegar nokkuð ljóst var að þessi lokaleikur mótsins yrði hreinn úrslitaleikur. En höllin tekur 3000 manns í sæti.

Við sendum baráttukveðjur út til þeirra TAKA ÞETTA NÚ STRÁKAR

ÁFRAM ÍSLAND