Góðum æfingabúðum hjá A-landsliði karla lokið

Æfingabúðum A-landsliðs karla lauk í morgun með hressandi æfingu.  Þjálfarar liðsins, Martin Struzinsky og Rúnar F. Rúnarsson, voru með nokkuð krefjandi æfingabúðir núna um helgina í Skautahöllinni í Laugardal.  Er þetta einn liður í undirbúningi liðsins fyrir komandi verkefni sem er Heimsmeistaramót IIHF Div2 B sem verður haldið í borginni Sofiu í Búlgaríu 6. - 12. apríl næstkomandi.

Þjálfararnir voru nokkuð ánægðir með framlag strákanna á æfingabúðunum enda voru þær nokkuð strembnar með tilheyrandi ísæfingum, prófunum á líkamlegu atgervi og eitthvað af liðs og einstaklings fundum.

Ísland mætir kunnulegum liðum á þessu móti einsog Ísrael, Búlgaríu, Nýja Sjálandi, og Kínverska Taipei.  En á þetta mót mætir lið sem við íslendingar höfum ekki mætt áður og það er landslið Kyrgyzstan.  Kyrgyztan fór taplaust í gegnum Div3 A í fyrra með 27:5 í markahlutfall þannig að þeir verða eflaust erfiðir við að eiga.