Fyrirmyndarfélag

Fyrir hönd stjórnar ÍHÍ vil ég óska Skautafélagi Akureyringa til hamingju með titilinn "Fyrirmyndarfélag ÍSÍ". Félagið sem einsog flestir vita hélt uppá 70 ára afmæli sitt um síðastliðna helgi og var þar mikið um dýrðir. SA-menn munu vonandi á komandi árum halda áfram því góða starfi sem það hefur unnið og ætti titillinn að verða þeim góð hvatning. Sjá má frétt um málið á vef ÍSÍ hér.

HH