Frost mót 5. 6. og 7. flokkur á Akureyri

Kælismiðjan Frost á Akureyri
Kælismiðjan Frost á Akureyri

Frost mótið í íshokkí fer fram nú um helgina á Akureyri. Kælismiðjan Frost er stuðningsaðili mótsins.  Um er að ræða 5.6. og 7. flokk úr öllum félögum landsins sem taka þátt.  Mótið hefst á laugardagsmorgun og lýkur um hádegisbil á sunnudag.

Það má því teljast öruggt að það verði líf og fjör í Skautahöllinni á Akureyri um helgina og eru allir velkomnir. Mót af þessu tagi styrkir og eflir andann og gefur leikmönnum færi á að kynnast hverjum öðrum og um leið bætir getu í íshokkí, skautatækni og kylfuleikni.

Kaffi verður á könnunni og örugglega hægt að næla sér eitthvað gott í gogginn í sjoppunni.  Sjáumst hress og kát :-) tökum með okkur góða skapið. Afar og ömmur, frænkur og frændur sérstaklega velkomnir.