Frestun vegna veðurs

Þriðja leik í úrslitum kvenna sem leika átti á Akureyri í kvöld, hefur verið frestað. 

Leikurinn verður leikinn á morgun föstudaginn 27. mars og hefst klukkan 16:45 í Skautahöllinni á Akureyri. 

Fjórði leikur hefur einnig verið færður og verður hann leikinn á sunnudag 29. mars, klukkan 16:45 í Skautahöllinni í Laugardal.