Um helgina 4.–6. september fór fram Learn to Play (LTP) námskeið á vegum Íshokkísambands Íslands og IIHF fyrir verðandi og núverandi íshokkíþjálfara. Dagskrá helgarinnar var þétt og einkenndist af miklum metnaði, lærdómi og skemmtilegum umræðum.
Umsjón með námskeiðinu höfðu þau Andri Freyr Magnússon og Sarah Smiley. Allir sem æft hafa íshokkí undanfarin 10 ár eða lengur ættu að þekkja þessi nöfn, en saman hafa þau kennt því sem næst öllum börnum á landinu sem hafa hafið sinn íshokkíferil á þeim tíma.
Í febrúar síðastliðnum sóttu þau sjö daga Learn to Play Instructor námskeið hjá IIHF í Búdapest til að öðlast réttindi sem leiðbeinendur í LTP-kerfinu. Þar kynntust þau þjálfurum alls staðar að úr Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Ungverska íshokkísambandið, heimafélagið og krakkarnir sem æfa íshokkí í Búdapest tóku virkilega vel á móti þeim og var sú reynsla dýrmæt inn í námskeið helgarinnar.
Dagskráin hófst á föstudagskvöldi í Skautahöllinni í Laugardal með bóklegum hluta og hópaverkefnum þar sem farið var yfir grunnstefnu LTPD (Long Term Player Development) og aldursmiðaða kennslu.
Laugardagurinn var sömuleiðis í Laugardalnum þar sem farið var yfir mótun æfinga og tækniþjálfun. Hápunktur dagsins var svo frábær æfing á ís þar sem þátttakendur fengu að spreyta sig í að leggja upp og stýra æfingu með krökkunum í U8 og hokkískóla SR.
Á sunnudeginum færði hópurinn sig upp í Grafarvog á Skautasvellið Egilshöll þar sem áherslan var á leiki á minni svæðum (Small Area Games) og afís-þjálfun (off-ice). Þátttakendur fengu aftur að spreyta sig í skipulagi og stýringu, í þetta sinn með krökkunum í Fjölni/Birninum þar sem tekin var bæði afís-æfing og ísæfing með iðkendum úr U10, U8 og hokkískóla.
Sérstakar þakkir fá eftirtaldir 15 þátttakendur sem tóku þátt af fullum krafti um helgina:
Andrea Kristjánsdóttir
Björn Guðmundsson
Einar Hildarson
Elísabet Erla Grétarsdóttir
Inga Rakel Aradóttir
Janus Kjaran Guðjónsson
Marta Joy Hermannsdóttir
Melkorka Otradóttir
Rakel Svava
Sigrún Agatha Árnadóttir
Styrmir Knörr Nickel
Svandís Erla Pétursdóttir
Tara Sif Ragnarsdóttir
Tinna Líf Teitsdóttir
Örn Thomas Hannam Helgason
Það var virkilega ánægjulegt að sjá þann mikla áhuga og metnað sem þessi öflugi hópur mætti með. Það er óhætt að segja að framtíð íshokkíþjálfunar á Íslandi sé í mjög góðum höndum!
En dagskránni er ekki lokið, því um næstu helgi mun sambærilegt námskeið fara fram á Akureyri. Þar heimsækir Andri sinn gamla uppeldisklúbb, Skautafélag Akureyrar, þar sem Sarah starfar einnig sem yfirþjálfari yngri flokka. Við hlökkum mikið til að halda leiknum áfram fyrir norðan!