Flugtímar og ferðlag

Við fljúgum frá Keflavík til London og þaðan áfram til Seul í Kóreu og þaðan til Auckland í Nýja Sjálandi og þaðan til Dunedin.  Frá Íslandi til Bretlands eru um 3 tímar, frá Bretlandi til Kóreu eru um 10 tímar og frá Kóreu til Nýja Sjálands er um 12 tímar og innanlandsflugið er um 2 tímar.    Þetta gera samtals 27 klst á flugi.  Ferðin til Nýja Sjálands er nokkuð þægileg fyrir utan 9 klst bið í London.  Heimleiðin verður hins vegar aðeins lengri þar sem gert er ráð fyrir að gist verði eina nótt í Seúl í Kóreu.  Nákvæmt ferðaplan verður hins vegar sett hér inn á vefinn innan skamms.

SigSig