Fleiri íslenskir dómarar til Danmerkur

Um helgina halda þeir Snorri G. Sigurðarson og Ragnar Óskarsson utan til Danmerkur þar sem þeir munu dæma tvo leiki á laugardag og sunnudag.  Snorri verður aðaldómari í báðum leikjunum og Ragnar línumaður.  Á laugardaginn munu þeir dæma U16 leik á milli Rödovre og Helsingborg en á sunnudaginn verður það U19 ára lið Gentofte og Esbjerg.
 
Þetta er í annað skiptið sem dómarar frá okkur fara utan, en þeir Helgi Páll Þórisson og Jón Heiðar Rúnarsson riðu á vaðið í síðasta mánuði.  Snorri og Ragnar eru reyndir menn í faginu og munu leysa þetta verkefni með miklum sóma.