Ferðalög og veður

Eins og öllum má vera ljóst er færð erfið þessar klukkustundirnar. SA-menn sem bæði ætluðu að koma suður með stóran hóp barna en einnig 2. flokkinn sinn hafa eftir samráð við rútubílstjóra og veðurstofu frestað ferð sinni suður fram að hádegi í það minnsta. Þá verður aftur farið yfir stöðuna og fljótlega uppúr tólf verður tekin ákvörðun um hvað gert verður. Fylgist því með hérna á síðunni hjá okkur því breytingar gætu orðið á dagskrá helgarinnar.

Myndina tók Ómar Þór Edvardsson

HH