Félagaskipti/leikheimildir



ÍHÍ staðfestir leikheimildir fyrir eftirfarandi leikmann og félag hans:

Miloslav Racansky Skautafélag Reykjavíkur - útgáfudagur 5. september

Leikheimildin sem gildir í 30 daga frá og með  útgáfudegi (samkvæmt félagaskiptareglu IIHF). Tryggingargjald hefur verið greitt inn á reikning ÍHÍ. Til að útgefin leikheimild öðlist endanlegt gildi verður frumrit pappíra að hafa borist öllum málsaðilum ella fellur leikheimild þessi niður sjálfkrafa. ÍHÍ mun staðfesta endanlega afgreiðslu þegar frumrit félagaskiptanna  hafa skilað sér á alla áfangastaði.

Sótt hefur verið um félagaskipti fyrir eftirtaldan leikmann:

Lísa Lind Ólafsdóttir frá Birninum til SA.

Fyrra félag hefur staðfest skuldleysi leikmannsins. Félagaskiptagjald hefur verið greitt til ÍHÍ. Fyrrnefndur leikmaður telst því löglegur með liði sínu.

HH