Félagaskipti/leikheimild.

ÍHÍ staðfestir leikheimild fyrir eftirfarandi leikmenn:
Fyrir Skautafélag Akureyrar, leikheimild sem gildir í 30 daga frá og með 30. september (samkvæmt félagaskiptareglu IIHF) til handa Joshua Gribben. Tryggingargjald hefur verið greitt inn á reikning ÍHÍ. Útgefið leikleyfi frá IIHF gildir í 30 daga, innan þess tíma verða frumrit pappíra að hafa borist öllum málsaðilum ella fellur leikheimild þessi niður sjálfkrafa þann 30. október 2008. ÍHÍ mun staðfesta endanlega afgreiðslu þegar frumrit hafa skilað sér á alla áfangastaði.
Að uppfylltum áðurnefndum skilyrðum, um skil og frágang á frumritum pappíra, gildir leikheimildin út keppnistímabilið.

Fyrir Skautafélagið Björninn, leikheimild sem gildir út leiktímabilið til handa Niklas Aalto Setala byggt á leikleyfi, Letter of approval (LOA), frá IIHF. Tryggingagjald hefur verið greitt til ÍHÍ og telst leikmaðurinn því löglegur með liði sínu.

Óskað hefur verið eftir félagaskiptum fyrir Gunnlaug Thoroddsen frá Narfanum til Skautafélags Reykjavíkur. Skuldleysi leikmannsins við sitt gamla félag hefur verið staðfest og félagskiptagjald hefur verið greitt til ÍHÍ. Gunnlaugur telst því löglegur leikmaður með Skautafélagi Reykjavíkur.

HH