Félagaskipti frá SA til Narfa

ÍHÍ hefur borist beiðni frá Narfa í Hrísey um félagaskipti fyrir eftirtalda leikmenn frá Skautafélagi Akureyrar yfir til Narfa.
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Héðinn Björnsson
Sveinn Björnsson
Helgi Gunnlaugsson
Heiðar Gestur Smárason
Skautafélag Akureyrar hefur staðfest að ofantaldir leikmenn séu skuldlausir við félagið og því munu félagaskipti þeirra taka gildi þegar að gjaldkeri ÍHÍ Magnús Finnsson hefur staðfest að greiddar hafi verið 5000 krónur í félagaskiptagjald fyrir hvern þeirra inn á reikning ÍHÍ.