England - Ísland 14 - 2

Íslenska Undir 18 ára liðið okkar mætti Englendingum í dag og tapaði 14 - 2, Ed þjálfari hafði aðein 8 stráka á bekknum því hinir voru rúmfastir í flensu. Veikindi þessi hafa sett mikin svip á liðið og hefur það ekki náð einum leik fullskipað.

Að sögn Ed stóðu þessir 8 drengir sig mjög vel en 8 menn á móti 20 í heilan leik er hlutfall sem að gengur ekki upp. Við sendum drengjunum okkar bestu kveðjur og vonum að flensan fari nú að gefa eftir því að eftir eru leikir við Ástralíu og Mexíkó en þau lið eiga að vera í svipuðum styrkleikaflokki og liðið okkar, komist það á fætur.

Áfram Ísland!!!