Líkt og á síðasta ári hefur Íshokkísambandið sótti um styrk til Afrekssjóðs og Afreksmiðstöðvar til að mæta þeim útgjöldum sem þátttakendur í ungmennaverkefnum sambandsins lögðu út fyrir á tímabilinu janúar til mars 2026. Þar er um að ræða U18 ára lið pilta, U18 ára lið stúlkna ásamt U20 ára liði pilta.
Umsókn Íshokkísambandsins hefur verið staðfest og samþykkt. því er nú óskað eftir því við leikmenn og ef aldur leikmanna er yngri en 18 ára, þá forráðamenn þeirra, að þeir gangi frá umsókn (eyðublað í takkanum hér að neðan) sem nálgast má hér í fréttinni og sendi umsóknina útfyllta inn til skrifstofu ÍHÍ á netfangið ihi@ihi.is eða á vidarg@ihi.is fyrir 20. ágúst næstkomandi.
Gera má ráð fyrir að að styrkgreiðslur til leikmanna og forráðamanna verði greiddar út í september mánuði. Eftir nokkru er að slægjast en styrkgreiðsla á hvern einstakling getur numið tugum þúsunda. Upphæð styrks er breytileg milli ára eftir fjölda þeirra landsliðsverkefna sem sækja um og eðli verkefnanna. Stjórnarfólk aðildarfélaga er hvatt til þess að ýta á landsliðsfólk sitt að láta vita af þessu ferli og að opið sé fyrir umsóknir. Einungis er tekið við umsóknum á eyðublaðinu hér að neðan.