Félagaskipti fyrir Fjölni

Stjórn sambandsins fékk ósk um undanþágu fyrir félagaskiptum fyrir Gunnlaug Guðmundsson frá Skautafélagi Hafnarfjarðar yfir til Fjölnis.

Samþykkt var samhljóða í stjórn ÍHÍ að veita þessa undanþágu þar sem leikmaðurinn er að koma úr félagi sem ekki er með starfsemi. 
Fjölnir greiddi félagaskiptagjald fyrir leikmanninn.

Gunnlaugur Guðmundsson telst því löglegur leikmaður Fjölnis frá deginum í dag að telja.