Skautafélag Akureyrar óskaði eftir félagaskiptum fyrir Harrison Vernon Nagel leikmann frá Bandaríkjunum.
Alþjóða Íshokkísambandið og Spænska Íshokkísambandið hafa samþykkt félagaskiptin, en Nagel var með ótímabundin félagaskipti þangað.
ÍHÍ staðfestir því hér með að Harrison Vernon Nagel hefur fengið leikleyfi og telst löglegur leikmaður með karlaliði Skautafélags Akureyrar tímabilið 2025/2026.