Dómarapróf

Síðustu vikur hefur ÍHÍ haldið dómaranámskeið í Reykjavík og á Akureyri og fleiri námskeið verða haldin á næstu dögum, af þeim sem lokið hafa prófi nú þegar hafa þau Flosrún Vaka og Helgi Páll náð bestum árangri á regluprófi með 87%, lægsta einkunn var 43% og meðaltalið var 71%.
Dómaranefnd ÍHÍ óskar Flosrúnu og Helga til hamingju með góðan árangur.