Dómaranámskeið.

Einsog fram kom hér í frétt hjá okkur í síðustu viku þá verður haldið dómaranámskeið á næstkomandi laugardag. Námskeiðið fer fram í Skautahöllinni í Laugardal og hefst klukkan 15.00. Hér er um frábært tækifæri fyrir alla dómara að ræða enda hefur fyrirlesarinn dæmt fjöldann allan af leikjum, m.a. í NHL. Við hvetjum við dómara jafnt sem línudómara til að mæta. Til að gera okkur aðeins grein fyrir fjöldanum förum við fram á að menn skrái sig hjá okkur. Það er einfalt, sendið tölvupóst á ihi@ihi.is þar sem kemur fram nafn og félag.