Dómaranámskeið á föstudag og sunnudag

Hinn danski Jens C. Fossaberg sem kemur til landsins í dag fimmtudag mun halda stutt námskeið fyrir dómara á ís, bæði á Akureyri og í Reykjavík.  Á Akureyri verður ístími á milli kl. 15:00 - 16:00 á föstudag en í Reykjavík verður námskeiðið á sunnudagskvöldið frá kl. 20:30 - 21:30.
 
Farið verður m.a. í nokkrar æfingar fyrir dómara, staðsetningar, uppköst og sitthvað fleira sem allir hafa gott af að læra og/eða rifja upp.  Allir línudómarar sem og aðaldómarar eru eindregið hvattir til að mæta og skerpa á kunnáttunni